Narfi frá Áskoti
Narfi er hjá Jakobi Svavari í þjálfun og fer stöðugt fram. Afkvæmi hans eru hreyfingarmikil og fara um á öllum gangi.
Folöld fædd 2014 og 2015 undan honum eru til sölu. Hér fyrir neðan má sjá Narfa á tölti og ekki skemmir fótaburðurinn.
Gengur vel í hestasundi
Mikil ásókn hefur verið í sund undanfarna mánuði. Mismunandi er eftir hverju er verið að sækjast við þjálfun. Þessi síða er ný og þarf nokkra vinnu við að ljúka uppsettningu hennar. Munum við leitast eftir að hafa hana á jákvæðum nótum og byrta reglulega myndir af sundgestum okkar.
Kostir hestasunds
Þrek og Þol
Þrek og þol við sund vex mikið enda taka hross í notkun lægsta hálsvöðva og synda með breyttri öndun.
Múkk
Múkk hverfur á 5 til 10 dögum með samspili aukins blóðflæðis til fóta og klórs í vatninu.
Bólgur
Bólgur í fótum hjaðna mjög hratt.
Gangtegundir
Styrkir gangtegundir sérlega skeið og brokk.
Sjúkraþjálfun
Leysir mörg vandamál, s.s. opin sár, bak, háls og fætur og veitir gleði.